Sigrún
Kristinsdóttir
f.
12.03.86 d. 02.07.06
Blessuð sé minning þín elsku
vinkona

æji þessi elska....farin frá mér....ég meika þetta
ekki....ég samt finn ekki neitt....ég er alveg dofin....ég hef
aldrei misst neinn áður og veit ekkert hvað ég á að gera... hvert
ég á að snúa mér....þín verður saknað sárt elsku hjartað
mitt....

ókei sjáum nú til... ég kynntist Sigrúnu þegar að
við vorum á fermingaraldri....ég vissi alltaf svona hver hún var
þar sem að við vorum saman í skóla en ég kynntist henni þegar að
við vorum 12 ára eitthvað svoleiðis....og guð ég man svo vel hvað
mér fannst gaman að fara með henni heim í Oddeyrargötu og horfa á
hana syngja nýjasta lagið með Backstreet Boys...heh og hvað ég man
eftir því að maður hélt að þetta væri bara tímabil sem að hún
kæmist yfir en þetta er einn mesti aðdáandi Backstreet Boys sem að
ég hef á ævi minni kynnst.... seinasta sumar vorum við
óaðskiljanlegar....stundum gleymdi ég því að ég ætti kærasta heima
því að á hverju kvöldi fórum við út að rúnta og um helgar fórum við
að djamma og ef að það nennti enginn með okkur þá fórum við bara
tvær og það var alltaf ógeðslega gaman.....ég vil þakka þér fyrir
allar þessar góður stundir sem að við höfum átt saman....ég mun
ávallt minnast þeirra.
í nótt áður en ég ætlaði að reyna að sofna....þá
var ég að gramsa í kommóðsskúffunni minni og fann kort sem að þú
skrifaðir til mín...það hljómar svona:
Elsku Hildur
mín
til hamingju með 20 ára
afmælið
og megi árin vera mörg í
viðbót.
þín vinkona Sigrún
Kr
svo stóð á hinni hliðinni:
vonandi munum við vera
vinkonur í mörg ár í viðbót og við verðum að fara að vera duglegar
að hittast

þú ert frábær
vinkona
og ég bara sat og gat ekkert sagt eða gert....ég
klúðraði því alveg að hitta hana meira, ég var alltaf að gleyma þvi
að kaupa handa henni afmælisgjöf og er svo reið við mig útaf
því....það er svo margt sem að ég hefði viljað gera öðruvísi
sambandi við hana elsku Sigrúnu mína....en á sama máli huxa ég...ef
að það væri ekki þetta væri það þá ekki bara eitthvað annað sem að
ég mundi sjá eftir?
en eitt er víst...hún vissi alveg hvað ég elska
hana mikið og hvað hún var mér mikils virði og ég er sátt með
það....guð þessi stelpa....svo falleg....eruði að djóka...hún leit
aldrei ílla út...svo smart og skemmtinleg.....enda alltaf þegar að
við hittumst þá lá maður í hláturskasti....hún gat alltaf komið mér
til að hlæja. við höfum gengið í gegnum ansi mikið saman elsku
Sigrún mín
Sigrún var ein af mínum bestu vinkonum og ég á
eftir að sakna hennar svo mikið. Þessa mynd fann ég á síðunni
hennar Brynju og ég elska þessa mynd svo mikið.....
jæja ástin mín....ég er hætt að sjá af tárum
þannig ég held að ég segi þetta bara gott í bili....ég elska þig
óendanlega mikið og veit að þú ert kominn á góðan stað og vonandi
hittumst við þar einhvern tíman. svo vil ég einnig senda fjölskyldu
hennar Sigrúnar minnar, mínar dýpstu samúðarkveðjur.
ég ætla að taka mér smá hvíld á blogginu....þarf
að átta mig aðeins á hlutunum
Hildur